SPLIT VFX
Split VFX sérhæfir sig í myndbrellum fyrir kvikmyndir, þætti og auglýsingar. Alveg frá framleiðsluferli þar sem kostnaðar og vinnsluáætlun er sett upp, og svo í gegnum tökuferlið með verkefnastýringu og gagnaöflun, og svo loks í eftirvinnslunni sjálfri.
- Hreyfigrafik í After Effects.
- Samsetning á þrívíðu og tvívíðu efni í Nuke.
- Þrívíð teikning og kvikun í Max eða Maya.
Ekkert verkefni er of lítið og ekkert verkefni er of stórt. í stærri verkum tökum við inn samstarfsaðila, annað hvort innanlands eða erlendis frá.
SPLIT DIT
Gagnafrágangur og úrvinnsla bæði á tökustað eða efni keyrt í hús. Hvort sem það þarf eingöngu að koma efninu fyrir eða beðið er um meiri vinnslu þá er boðið upp á þær lausnir sem verkefnið kallar á.
Mikil reynsla og sterk innsýn í allt eftirvinnsluferlið auk framúrskarandi tækjabúnaðar gerir Split DIT að ákjósanlegum samstarfsaðilum.
- MD5 afrit, skýrslur, þjöppun fyrir klippara og framleiðslu með tækniskoðun á efni.
- LUT og grunnvinnsla á litum.
- “Sync” á hljóði og mynd og senur merktar upp fyrir klippara. Gróft senuklipp jafn óðum í gegnum tökuferlið.
- Stuðningur fyrir stafrænar skriftur. Þannig fylgja skriftuupplýsingar efninu í Metadata alla leið inn í klippiforritið.
- DIT stöð sem bíður upp á Qtake fyrir “motion control” og “Live Key” upp í 4k 60fps.
- Gagnaflutninghraði upp í 11.600- MB á sekúndu gefur möguleika á mjög hraðri vinnslu.
- 32 TB RAID fyrir öryggiseintak. Framleiðsla er oftast með tvö eintök. Við geymum þriðja eintakið þar til hin tvö eru komin á örugga staði.
- Í stærri verkefnum er hægt að bjóða upp á 10 Giganet server, 32 TB sem gerir mörgum aðilum kleift að vinna í sömu gögnum með miklum tengihraða. Hentugt þar sem td. klippari, aðstoðarklippari, DIT og VFX þurfa aðgang að efni á sama tíma.